Sigur gegn Þór Akureyri í æfingaleik

september 29, 2026

Snæfell tryggði sér sjö stiga sigur gegn Þór frá Akureyri, 94–87, í æfingaleik meistaraflokks karla í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag.

Leikurinn var jafn á köflum en okkar menn leiddu nánast allan tímann, mikil spenna einkenndi lokasprettinn þar sem liðin skiptust á körfum, en heimamenn reyndust sterkari á lokamínútunum og innbyrtu sigurinn. Cooper fór fyrir liði Snæfells og var stigahæstur með 27 stig, Keylane skilaði 25 stigum og Srdjan bætti við 12 stigum. Þá skoraði Erik 9 stig og þeir Jason og Hjörtur lögðu til 7 stig hvor.  Gunnar spilaði flottan leik skilaði einnig 6 stigum, 3 vörðum skotum og 3 stolnum boltum en lenti í villuvandræðum snemma í seinni hálfleik.

Í liði Þórsara var Jalen atkvæðamestur á vellinum með 29 stig og Justin skilaði sömuleiðis flottum leik með 23 stig. Axel bætti við 13 stigum og Baldur skoraði 9 stig fyrir gestina að norðan.

Dómarar leiksins voru þeir Baldur Þorleifsson og Guðni Sumarliðason og stóðu þeir sig með prýði, þökkum þeim snillingum fyrir dómgæsluna.

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!