Upplýsingapóstur fyrir foreldra/forráðamenn 2026 – 2027
Hér að neðan má sjá upplýsingapóst fyrir foreldra og forráðamenn, þar má sjá upplýsingar um æfingagjöld, hvernig þú skráir barnið…

Gestur Alexander Baldursson hefur skrifað undir samning við Snæfell og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Eftir að hafa verið í námi í borginni snýr Gestur aftur í Snæfellsbúninginn og verður mikilvæg viðbót við leikmannahópinn.
Gestur er mikill íþróttamaður sem leggur alltaf allt í verkefnið og er leikmaður sem gerir liðsfélaga sína betri með vinnuframlagi sínu og hugarfari. Við teljum að hann muni styrkja hópinn bæði innan sem utan vallar.
Við hjá Snæfelli erum einstaklega ánægð með að fá Gest aftur í hópinn og hlökkum til að sjá hann í rauðu treyjunni á komandi tímabili.
Velkominn heim!