Gunnlaugur Smárason framlengir við Snæfell!

júní 24, 2026

Snæfell hefur endurnýjað samning sinn við Gunnlaug Smárason sem mun áfram stýra meistaraflokki karla á komandi tímabili.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells er afar ánægð með að Gunnlaugur haldi áfram því mikilvæga starfi sem hann hefur byggt upp undanfarin ár. Á þeim tíma hefur hann lagt mikla vinnu í þróun liðsins og unnið markvisst að því að styrkja bæði leikmannahópinn og umgjörð meistaraflokksins.

Gunnlaugur er metnaðarfullur þjálfari sem leggur sig fram bæði innan sem utan vallar. Hann hefur sýnt mikla skuldbindingu gagnvart félaginu og er sannur félagsmaður sem vill sjá Snæfell halda áfram að vaxa og dafna.

Stjórnin hlakkar til áframhaldandi samstarfs og er sannfærð um að undir stjórn Gunnlaugs muni liðið halda áfram að taka skref fram á við á komandi tímabili.

Við óskum Gunnlaugi til hamingju með nýjan samning og hlökkum til komandi verkefna með honum við stjórnvölinn.

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!