Leikur 2 í kvöld á heimavelli Snæfells!
Leikur 2 í úrslitakeppni 1. deildar karla gegn Sindra kl 19:15 í kvöld! Nú reynir á stuðning ykkar kæru stuðningsmenn…

Í maí kom hlaupaþjálfarinn Gunnar Páll Jóakimsson í heimsókn og var með hlaupaæfingu fyrir elsta hópinn. Gunnar Páll er einn fremsti hlaupaþjálfari landsins og hefur hann m.a þjálfað þrjá Ólympíufara.
16 sprækir krakkar tóku þátt í æfingunni. Æfingarnar voru fjölbreyttar og reyndu á ólíka þætti. Æfingin gekk glimrandi vel og áhuginn leyndi sér ekki.
Gunnar Páll stefnir á að hafa aðra æfingu í sumar fyrir hópinn.

