
Jason Helgi Ragnarsson hefur skrifað undir samning við Snæfell og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Jason er uppalinn Snæfellingur sem spilaði upp alla yngri flokka félagsins. Hann lék einnig með Snæfell í 2. deild á sínum tíma og á því sterkar rætur innan félagsins. Eftir að hafa leikið með Fylki í 1. deild karla snýr hann nú aftur í Snæfellsbúninginn.
Jason er öflugur sóknarmaður með gott skot og góðan leikskilning. Hann hefur hæfileika til að skapa skot bæði fyrir sjálfan sig og liðsfélaga sína og getur haft áhrif á leikinn á margvíslegan hátt. Auk þess býr hann yfir góðri lengd sem mun nýtast liðinu vel, bæði við að loka svæðum í varnarleiknum og í frákastabaráttunni.
Það er alltaf sérstakt þegar uppaldir Snæfellingar snúa aftur til félagsins og við erum afar ánægð að fá Jason aftur í Hólminn. Við teljum að hæfileikar hans, fjölhæfni og tenging við félagið muni styrkja hópinn á komandi tímabili.
Velkominn heim, Jason!