Juan Luis Navarro áfram í herbúðum Snæfells

júní 20, 2026

Snæfell hefur framlengt samning sinn við Juan Luis Navarro sem mun því hefja sitt þriðja tímabil með félaginu.

Juan hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og er orðinn stór hluti af liðinu innan sem utan vallar. Juan býr yfir mikilli reynslu og mun því hjálpa ungu liði Snæfells mikið á komandi tímabili.

Juan er leikmaður sem gerir samherja sína betri, les leikinn af mikilli yfirvegun og kemur með þekkingu sem er ómetanleg fyrir ungan og metnaðarfullan hóp.

Hann mun áfram setja háan standard á æfingum og í leikjum og gegna mikilvægu leiðtogahlutverki innan liðsins.

Við hlökkum til að sjá Juan leiða liðið inn í nýtt tímabil í Snæfellsbúningnum.

Myndband af Juan: https://www.youtube.com/watch?v=bxOhWcwTZIg

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!