Keylane Lasisi í Snæfell

júní 20, 2026

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið við franska framherjann Keylane Lasisi fyrir komandi tímabil í 1. deild karla.

Lasisi er 198 cm fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bæði sem framherji og miðherji. Hann kemur til Snæfells frá Huntington University í Bandaríkjunum. Keylane mun hjálpa liðinu inn í teig og í frákastabaráttunni.

Keylane er orkumikill leikmaður sem leggur mikla áherslu á vörn, samskipti og liðsheild. Hann er þekktur fyrir að geta dekkað margar stöður, hlaupið völlinn af krafti og gert þá hluti sem hjálpa liðum að vinna leiki.

Við bjóðum Keylane hjartanlega velkominn til Stykkishólms og hlökkum til að sjá hann í treyju Snæfells á komandi tímabili.

Myndband af leikmanni: https://www.youtube.com/watch?v=iujs2RHDCfU

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!