
Á dögunum hafa nokkrir leikmenn skrifað undir samning fyrir komandi tímabil í körfunni. Allt eru þetta heimamenn sem eru með mismikla reynslu en allir eiga það sameiginlegt að vera Snæfellingar í húð og hár.
Sveinn Arnar Davíðsson þarf ekki að kynna fyrir Snæfellingum, hann er einn af leikjahæstu leikmönnum félagsins frá upphafi. Hann hjálpar ungu strákunum mikið, þá sérstaklega varnarlega. Við erum mjög glöð að halda áfram að vinna með Svenna því hann gefur mikið af sér. Sannkallaður Snæfellingur!
Snjólfur Björnsson fyrirliði liðsins skrifaði undir samning og mun hann halda áfram að miðla sinni reynslu inn í hópinn. Snjólfur er mikilvægur félaginu og við fögnum því að hann gefi sig áfram í verkefnið. Vinnusemin hans smitar í hópinn og er það akkúrat eitt af mikilvægu hlutverkum fyrirliða og eldri leikmanna.
Hjörtur Jóhann Sigurðsson er einn af þessum ungu og efnilegu. Hjörtur varð Íslandsmeistari í 11. flokki (2. deild) í vetur og spilaði þar frábærlega. Hjörtur er flottur sóknarmaður sem mun halda áfram að bæta sig í félaginu. Hjörtur ætlar sér langt og hann veit að það krefst aga og vinnusemi.
Eyþór José Cara Eyþórsson skrifaði undir sinn þriðja samning við Snæfell og hefur hann tekið miklum framförum. Hann er leikinn með boltann og mikill íþróttamaður. Eyþór varð Íslandsmeistari í 11. flokk í fyrra í 2. deild. í 11. flokk stjórnaði Eyþór leik liðsins oft á tíðum frábærlega í fyrra. Hann eins og aðrir ungir leikmenn ætla að leggja hart að sér til þess að banka á dyrnar fyrir mínútum á næsta tímabili.
Margeir Bent Oscarsson skrifaði undir samning og erum við glöð að fá hann aftur í hópinn. Margeir er mikill íþróttamaður og getur farið eins langt og hann ætlar sér. Margeir varð Íslandsmeistari í 11. flokk (2. deild) á tímabilinu sem var að klárast og átti þar flotta leiki.
Gunnar Guðmundsson æfði með meistaraflokk í fyrsta skipti í fyrra og bætti sig mikið. Hann ætlar að leggja mikið á sig í sumar til þess að verða enn betri. Gunnar varð Íslandsmeistari í 11. flokk (2. deild) í vetur með liðinu sínu og átti þar góða leiki.
Bæring Breiðfjörð Magnússon skrifar undir sinn annan samning við Snæfell. Bæring var að klára 10. bekk og kom vel inn í hópinn á sínu fyrsta ári. Bæring er kraftmikill leikmaður sem þarf að slípa aðeins til. Hann hefur metnað og dugnað til að bæta sig. Bæring var Íslandsmeistari í 11. flokk (2. deild) á tímabilinu sem var að klárast.
Sumarið verður mikilvægt fyrir ungu leikmennina og munu þeir ákveða hversu mikla aukavinnu þeir ætla að leggja á sig, klúbburinn er tilbúinn að styðja þá eins mikið og hægt er. Ungu strákarnir munu einnig spila í 12. flokk sem er frábært til þess að þróa leikmenn, þar fá þér möguleika á því að vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð. Gömlu hundarnir greiða leiðina og ungu fylgja eftir og vonandi taka fram úr.
Frábærar fréttir að ná að halda flottum kjarna í Stykkishólmi og þessir ungu og efnilega leikmenn eiga framtíðina fyrir sér.
Eins og kom fram um daginn þá skrifaði Juan Luis Navarro einnig undir framlengingu á sínum samning. Það eru mikil gleði tíðindi.
Gunnlaugur Smárason þjálfari mun halda áfram með sitt hlutverk sem þjálfari liðsins og virkjaði stjórn KKD. Snæfells auka ár í samningnum hans. Gunnlaugur tók við liðinu þegar það var ekki skráð í deild og hefur komið að uppbyggingu félagsins. Við erum glöð að halda áfram að vinna með honum.
Fleiri undirskriftir verða kynntar á næstu dögum.