
Eins og birtist í fréttum á dögunum hefur Snæfell ákveðið að tefla fram liði í 1. deild kvenna á næstu leiktíð. Það eru miklar gleðifréttir að geta gert það og vonum við að þetta sé byrjunin á góðri uppbyggingu liðsins til framtíðar. Það er okkur sem samfélagi afar mikilvægt að hafa fyrirmyndir fyrir okkar yngstu iðkendur af öllum kynjum. Á dögunum skrifaði heldur betur hópur leikmanna undir samning við Snæfell um að spila á næsta tímabili með liðinu. Við ætlum að fara yfir þá leikmenn hér fyrir neðan.
Rebekka Rán Karlsdóttir ætlar að leggja gelluboltaskóna á hilluna í bili og hefur ákveðið að spila með Snæfell í vetur. Rebekka hefur mikla reynslu úr efstu deildum körfunnar og er mikil liðskona innan sem utan vallar. Það eru frábærar fréttir að fá Rebekku aftur í hópinn og mun hún styrkja liðið mikið.
Anna Soffía Lárusdóttir er komin HEIM. Það eru frábærar fréttir fyrir okkur að fá Önnu Soffíu aftur heim. Hún hefur spilað í efstu deild í mörg ár og staðið sig frábærlega í liðum eins og Breiðablik, Haukum og nú síðast Hamar/Þór. Velkomin aftur heim Anna Soffía.
Helga Hjördís Björgvinsdóttir er reynslubolti sem allir Snæfellingar þekkja, hún kemur til með að hjálpa liðinu á sinn góða hátt með dugnaði og flottum körfum (Helga for corner three – it’s good!). Það er mikill styrkur fyrir unga leikmenn að hafa Helgu með sér í liði því hún mun miðla reynslu eins og enginn sé morgundagurinn.
Rósa Kristín Indriðadóttir mun halda áfram að miðla reynslu og hvetja ungu stelpurnar til dáða. Hún mun líklega einnig reyna að herða þær og undirbúa þær fyrir lífið. Rósa er dugnaðarforkur sem hefur reynst meistaraflokk Snæfells frábærlega í gegnum tíðina, hún er alltaf tilbúin að taka þátt og hjálpa. Ungu leikmenn Snæfells er heppnar að fá Rósu með sér og það er félagið líka.
Björg Guðrún Einarsdóttir ætlar að taka skóna fram að nýju og er það gríðarlegur styrkur fyrir liðið að fá hana inn í hópinn. Dugnaður hennar og kraftur mun koma liðinu langt. Björg hefur mikla reynslu og var á sínum tíma að banka verulega fast á landsliðsdyr Íslands. Björg mun hjálpa ungu leikmönnum liðsins mikið og hækka tempóið á æfingum.
Ellen Alfa Högnadóttir mun taka skóna fram eftir langa pásu, Ellen er mikill dugnaðarforkur sem kallar ekki allt ömmu sína. Ellen mun koma með keppnisskap inn í hópinn. Ellen er frábær liðskona innan sem utan vallar og er nánst öruggt að það verður gaman hjá stelpunum í vetur með hana innanborðs.
Dagný Inga Magnúsdóttir hefur skrifað undir samning við Snæfell og eru það frábærar fréttir. Dagný hefur í gegnum tíðina spilað stórt hlutverk í liði Snæfells. Dagný er ekki bara frábær liðsmaður innan vallar hún er það nefnilega einnig utan vallar. Það er gott að fá þig aftur til baka eftir stutta pásu.
Alfa Magðalena Frost skrifaði undir samning og mun spila með okkur í vetur. Alfa hefur verið með síðustu ár og hefur bætt sig hvert ár. Í fyrra spilaði Alfa með 12. flokk Ármanns og stóð sig vel. Alfa hefur möguleika á að koma sér í hóp þeirra bestu með dugnaði. Alfa hefur góðan leikskilning og mun leggja allt í sölurnar í vetur. Það verður gaman að fylgjast með henni vaxa og dafna innan sem utan vallar.
Adda Sigríður Ásmundsdóttir er ein af þessum ungu og efnilegu sem hefur flotta reynslu þrátt fyrir aldur. Adda Sigga spilaði með Þór Akureyri á síðasta tímabili. Adda Sigga hefur verið í yngri landsliðum Íslands og mun án efa fá mikla og góða reynslu á því að spila áfram í góðu liði Snæfells. Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Adda Sigga kemur inn í tímabilið.
Díana Björg Guðmundsdóttir spilaði með okkur í fyrra og kemur frá Skallagrím. Díana er ung og efnileg og kemur til með að styrkja hópinn okkar. Það eru gleðifréttir að Díana sé tilbúin í að halda áfram með okkur.
Birgitta Mjöll Magnúsdóttir er mikil félagskona og ætlar að hjálpa liðinu í vetur. Það er gott að hafa leikmenn eins og Birgittu innan borðs. Birgitta hefur í gegnum tíðina verið stór partur af hópnum. Það er mikilvægt að hafa stelpur eins og Birgittu.
Thelma Lind Hinriksdóttir ætlar að taka fram skóna eftir langa pásu, Thelma var á sínum tíma mikið efni en meiðsl settu strik í reikninginn og varð hún að taka sér pásu. Það eru frábærar fréttir að fá Thelmu til liðs við okkur og vonandi nær hún fyrri hæðum í körfunni. Innilega velkomin aftur Thelma.
Katrín Mjöll Magnúsdóttir spilaði með á síðasta tímabili áður en liðið þurfti að draga sig úr keppni og sýndi oft á tíðum góða takta. Katrín er ung og efnileg og verður gaman að sjá hana spila og æfa með reynslumeiri leikmönnum, hún mun án efa græða á því eins og allir ungir leikmenn liðsins.
Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl spilaði sínar fyrstu mínútur í meistaraflokki í fyrra þá í 9. bekk. Hún byrjaði inn á í nokkrum leikjum og stóð sig vel. Hún spilaði stórt hlutverk með 9. flokk á tímabilinu sem var að ljúka og mun án efa láta til sín taka með 10. flokk á næsta tímabili. Natalía er einn af þessum leikmönnum sem mun læra mikið í vetur. Hún eins og aðrir ungir leikmenn Snæfells eru í frábærri stöðu til þess að breytast í svamp og sjúga í sig visku frá reynslumeiri leikmönnum.
Eins og komið hefur fram þá skrifaði Haiden Denise Palmer undir saming á dögunum og mun hún þjálfa liðið. Það eru frábærar fréttir að fá Haiden aftur heim. Hún er virkilega spennt fyrir því að byrja í haust. Hún mætti á dögunum og hélt körfuboltanámskeið og var viðstödd undirskriftir. Þar skrifaði hún einnig undir og handsalaði með formönnum KKD. Snæfells og Umf. Snæfells þeim Daníel Ali Kazmi og Hjörleifi K. Hjörleifssyni.
Eins og glöggir lesendur sjá þá eru þetta allt stelpur sem hafa spilað fyrir Snæfell í mis mörg ár. Það er frábært að fá svona flottan hóp til þess að hefja uppbyggingu kvennaliðs Snæfells. Við vonum svo innilega að stuðningsfólk og styrktaraðilar séu tilbúin með okkur í þessa vegferð því það krefst mikillar vinnu að halda úti tveimur flottum liðum í körfubolta. Sjáumst á vellinum næsta haust!
Við þökkum Bæring Nóa fyrir góðar myndir að venju.