
Snæfell tók á móti selfyssingum í gærkvöldi og fóru gestirnir með sigur af hólmi 91 – 83. Leikurinn einkenndist af ágætis sprettum okkar manna og sérstaklega góðum fyrri hálfleik þar sem heimamenn voru að spila mjög vel á köflum og leiddu 43 – 41.
Selfoss sýndi styrk sinn í 3. Leikhluta þar sem hann hófst í 20 – 6 og skóp 74 – 57 forystu gestanna sem á endanum var of stór biti fyrir okkar menn sem náðu þó að saxa á forskotið og gera þetta að leik í byrjun 4. Leikhluta.
Snæfell byrjaði loka fjórðunginn vel saxaði jafnt og þétt á forskot gestanna og komst næst í 86 – 83 þegar 1. Mínúta var eftir. Með smá kænsku hefði verið hægt að stela sigrinum í lokinn en allt kom fyrir ekki.
Jakorie Smith var stigahæstur hjá Snæfelli með 19 stig og 5 stolna. Aytor Johnson Alberto skilaði 15 stigum og 3 stoðsendingum. Ísak Örn Baldursson fylgdi fast á eftir með 12 stig og góð framlagi í fráköstum ( 7 ) og 4 stoðsendingum. Juan Navarro hefur átt betri leiki en er ávallt stöðugur og skilaði 10 stigum, 8 fráköstum og 5 stoðsendingum. Það er ljóst að sóknarleikur liðsins er oft mjög flottur og það kemur góð hreyfing á boltann þegar Juan stýrir skútunni, enda reynslumikill leikmaður þar á ferð sem er gríðarlega mikilvægur fyrir liðið.
Snjólfur Björnsson var einnig mjög mikilvægur í gærkvöldi þegar hann kom sterkur inn af bekknum og með baráttu sinni hafði hann góð áhrif á leik liðsins á báðum endum vallarins og var liðið +20 stigalega þegar Snjólfur spilaði, auk þess sem hann bætti við 7 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum. Sturla Böðvarsson átti góða spretti eins og alltaf með 11 stig og 3 fráköst.
Hjá Selfossi var Collin Anthony Pryor með 19 stig og tók 13 fráköst fyrir gestina á meðan Steven William Lyles bætti við 23 stigum. Kristijan Vladovic skilaði 26 stigum 9 stoðsendingum og 6 þristum, hann var okkar mönnum erfiður á köflum.
Ítarlegri tölfræði: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Leikur?league_id=191&season_id=130402&game_id=6041738#mbt:6-400$t&0=1
Staðan í deildinni: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Deildir-flokkar?league_id=191