
Snæfell tryggði sér sjö stiga sigur gegn Þór frá Akureyri, 94–87, í æfingaleik meistaraflokks karla í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag.
Leikurinn var jafn á köflum en okkar menn leiddu nánast allan tímann, mikil spenna einkenndi lokasprettinn þar sem liðin skiptust á körfum, en heimamenn reyndust sterkari á lokamínútunum og innbyrtu sigurinn. Cooper fór fyrir liði Snæfells og var stigahæstur með 27 stig, Keylane skilaði 25 stigum og Srdjan bætti við 12 stigum. Þá skoraði Erik 9 stig og þeir Jason og Hjörtur lögðu til 7 stig hvor. Gunnar spilaði flottan leik skilaði einnig 6 stigum, 3 vörðum skotum og 3 stolnum boltum en lenti í villuvandræðum snemma í seinni hálfleik.
Í liði Þórsara var Jalen atkvæðamestur á vellinum með 29 stig og Justin skilaði sömuleiðis flottum leik með 23 stig. Axel bætti við 13 stigum og Baldur skoraði 9 stig fyrir gestina að norðan.
Dómarar leiksins voru þeir Baldur Þorleifsson og Guðni Sumarliðason og stóðu þeir sig með prýði, þökkum þeim snillingum fyrir dómgæsluna.