

Snæfell hefur samið við Srdjan Stojanovic sem mun gegna tvíþættu hlutverki hjá félaginu á komandi tímabili. Auk þess að styrkja meistaraflokk karla mun hann einnig taka að sér þjálfun yngri flokka félagsins.
Srdjan kemur með mikla reynslu inn í starf Snæfells og hefur fjórum sinnum farið með lið upp í efstu deild. Við erum því að fá til okkar sannan sigurvegara sem mun styrkja bæði leikmannahópinn og félagið í heild.
Ráðningin er mikilvægur liður í stefnu Snæfells um að efla starf yngri flokka og styrkja samstarf yngri flokka og meistaraflokks. Srdjan mun sjá um morgunæfingar fyrir iðkendur Snæfells auk þess að þjálfa þrjá yngri flokka og gegna mikilvægu hlutverki í þróun ungra leikmanna félagsins.
Gunnlaugur Smárason, þjálfari meistaraflokks karla, segir að þegar stjórn yngri flokka Snæfells hafi leitað til hans með ósk um að finna þjálfara sem gæti einnig spilað með meistaraflokknum hafi fyrsta símtalið verið til góðvinar félagsins, Mirkó umboðsmanns, sem hóf atvinnumannaferil sinn hjá Snæfelli í Stykkishólmi.
„Mirkó benti okkur á Srdjan og eftir að hafa kynnt okkur hann leist okkur afar vel á þá hugmynd að fá hann til félagsins. Hann mun ekki aðeins styrkja meistaraflokkinn heldur einnig verða frábær fyrirmynd og leiðbeinandi fyrir unga leikmenn okkar. Þetta er stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.“
Við bjóðum Srdjan hjartanlega velkominn til Snæfells og hlökkum til að sjá hann leggja sitt af mörkum bæði innan sem utan vallar