
Stjórn meistaraflokks Snæfells tilkynnir með trega að kvennalið félagsins verður ekki skráð til keppni í meistaraflokki á komandi tímabili. Ástæða ákvörðunarinnar er sú að of fáir leikmenn eru tiltækir til að halda úti samkeppnishæfu liði á næsta tímabili. Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið skoðaðir til að halda liðinu úti.
Það er einlæg stefna stjórnarinnar að um verði að ræða tímabundinn dvala með það að markmiði að byggja upp sterkan grunn fyrir endurkomu liðsins.
Körfuboltasamfélagið í Stykkishólmi býr að mörgum styrkleikum, svo sem góða íþróttaaðstöðu, öfluga þjálfun og öflugt skólastarf allt upp á framhaldsskólastig. Með það að leiðarljósi vonumst við til þess að hægt verði að þróa enn frekar þetta góða umhverfi þannig að það verði áfram ákjósanlegur valkostur fyrir unga körfuboltaiðkendur til framtíðar. Þrátt fyrir þessa styrkleika stendur félagið, líkt og mörg félög á landsbyggðinni, frammi fyrir áskorunum þegar kemur að því að halda ungum iðkendum áfram í íþróttastarfi eftir grunnskóla.
Á meðan á þessum dvala kvennaliðsins stendur verður sérstök áhersla lögð á uppbyggingu yngri flokka og markvissa undirbúningsvinnu með það að markmiði að skrá lið aftur til keppni um leið og forsendur leyfa.
Stjórnin þakkar öllum sem hafa lagt sitt af mörkum og hlakkar til áframhaldandi samstarfs. Við viljum sérstaklega þakka þeim leikmönnum sem hafa klæðst búningi Snæfells undanfarin ár og lagt sitt af mörkum við að halda uppi öflugu starfi í kvennakörfubolta Stykkishólmi.