Sturla Böðvarsson gengur til liðs við KR

ágúst 20, 2026

Eins og margir sáu fyrir nokkru hefur Sturla Böðvarsson hefur gengið til liðs við KR og skrifað undir eins árs samning við Vesturbæjarfélagið. Sturla er 18 ára og hefur leikið allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu, Snæfelli.

Sturla lék með Snæfelli í 1. deild karla á síðustu leiktíð og var þar einn af betri ungum leikmönnum deildarinnar. Hann skoraði að meðaltali 12,9 stig og tók 6,1 frákast í leik fyrir Snæfell síðasta vetur

Góð frammistaða hans skilaði honum einnig sæti í U18 ára landsliði Íslands í sumar, þar sem hann tók þátt í bæði Norðurlandamótinu og Evrópumótinu.

Það verður gaman að fylgjast með Sturlu í framtíðinni, hann er mjög efnilegur og getur orðið mun betri í framtíðinni. Nú tekur við nýtt verkefni hjá KR þar sem hann fær tækifæri til að halda áfram framförum sínum og sækja sér reynslu á nýjum vettvangi í góðum höndum Jakobs Sigurðssonar þjálfara KR

Snæfell þakkar Sturlu fyrir frábær uppeldisár á parketinu og fyrir hans framlag til liðsins á fyrstu árum hans í meistaraflokki. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum vaxa og þroskast sem leikmanni innan félagsins.

Við óskum Sturlu innilega góðs gengis í nýju verkefni sínu hjá KR og vitum að hann á eftir að láta til sín taka. Takk fyrir allt, Sturla – og gangi þér sem allra best!

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!