Snæfell tapaði stórt gegn Haukum á Ásvöllum

nóvember 17, 2026

Snæfell þurfti að sætta sig við 28 stiga tap þegar liðið heimsótti Hauka á Ásvelli laugardaginn 7. nóvember. Lokatölur urðu 119–91 eftir að Haukar náðu góðri forystu strax í fyrsta leikhluta.

Haukar byrjuðu leikinn af krafti og leiddu 28–17 eftir fyrsta leikhluta. Þeir héldu áfram að bæta við forskotið í öðrum og þriðja leikhluta og Snæfell náði ekki að brúa bilið þrátt fyrir að skora 91 stig í leiknum.

Cooper Jackson var stigahæstur Snæfells með 19 stig og gaf 6 stoðsendingar. Keylane Lasisi skoraði 17 stig og tók sjö fráköst, Srdjan var með 18 stig og 5 stoðsendingar. Símon og Jason voru sprækir með 13 stig og Jason með 11 stig af bekknum.

Hjá Haukum fór A. Bryant Jr. á kostum og skoraði 46 stig. D. Milka var með 10 fráköst og F. Valgarðsson gaf 11 stoðsendingar.

Ítarlegri tölfræði: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Leikur?league_id=191&season_id=132571&game_id=6153962

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!