Tap í fyrsta leik tímabilsins gegn KFG

október 8, 2026

Snæfell mátti þola 97–82 tap gegn KFG þegar liðin mættust í ÞG Verk höllinni föstudaginn 2. október.

KFG náði yfirhöndinni strax í upphafi og leiddi 23–18 eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn héldu áfram að hafa frumkvæðið í öðrum leikhluta og leiddu 46–35 í hálfleik nokkuð þægilega. Snæfell var með slæma nýtingu í 3ja stiga tilraunum eða 1 af 19 í fyrri hálfleiknum.

Snæfell kom sterkara inn í þriðja leikhluta og minnkaði muninn. Liðið vann leikhlutann 27–22 og fyrir 4. fjórðung munaði aðeins sex stigum, 68–62.

Í fjórða leikhluta náði KFG hins vegar aftur góðum tökum á leiknum og skoraði 29 stig gegn 20 stigum Snæfells. Lokatölur urðu því 97–82.

Snæfell vantaði ákveðni og kraft í vörnina ásamt því að stíga hreinlega út í frákastabaráttunni, þá sérstaklega í fyrri hálfleik og virtist eins og KFG myndi landa frekar þægilegum sigri. Seinni hálfleikur var mun betri og sýndu strákarnir á köflum flottar rispur þar sem leikmenn fóru að spila ákveðna vörn og hirða fleiri fráköst ásamt því að sýna meiri þolinmæði í sóknarleiknum. 

Stigahæstur í liði Snæfells var reynsluboltinn og nýr leikmaður Serdan Stojanovic með 31 stig. Keylane Lasisi var með 20 stig og Cooper Jackson 16 stig, 8 stoðsendingar, 7 fráköst og 5 stolnir bolta.

Hjá KFG var Viktor Lúðvíksson stigahæstur með 26 stig og 15 fráköst.

Næsti leikur er heimaleikur gegn KV á laugardaginn 10. Okt kl 15:00 

Frekari tölfræði úr leiknum má sjá á kki.is – smelltu á hlekkinn: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Leikur?league_id=191&season_id=132571&game_id=6153929#mbt:6-400$t&0=1

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!