ÍA aðeins of stór biti fyrir okkar stráka

október 20, 2026

Snæfells strákar töpuðu gegn skagamönnum upp á Akranesi þann 16. október síðastliðinn.

Leikurinn fór rólega af stað en svo hertu heimamenn smá saman tökin og náðu yfirhöndinni 14 – 5. Skagamenn voru nánast einráðir undir körfunni með Gojko Zudsum fremstan í flokki. Staðan í eftir 1.leikhluta var 33 – 15 heimamönnum í vil. Snæfell byrjaði 2. leikhluta af krafti og náðu að minnka forskotið í 33 – 21, jafnræði var svo með liðunum út leikhlutann og var staðan í hálfleik 57 – 39. Áfram var jafnræði með liðunum í 3.leikhluta og staðan 83 – 65 að honum loknum. Skagamenn byrjuðu svo 4.leikhluta af krafti og komst í 99 – 69 og gátu svo leyft varamönnum sínum að klára leikinn síðustu 5 mínúturnar. Lokastaðan 113 – 81 fyrir heimamenn.

Framlagshæstu leikmenn

ÍA:  

 Gojko Sudzum: Tvöföld tvenna – 21 stig og 12 fráköst  

 Sölvi Ólason: 21 stig, 9 stoðsendingar  

 Igor Maric: 21 stig (6/8 í þristum)  

Snæfell:  

 Cooper J. Jackson: 21 stig, 6 stoðsendingar  

 Srdan Stojanovic: 19 stig, 8 fráköst  

 Keylane Lasisi: Tvöföld tvenna 16 stig, 11 fráköst  

Áhugaverð atriði úr leiknum

 Allir leikmenn beggja liða komu við sögu í leiknum í kvöld.  

 ÍA hitti helmingi fleiri þristum 14/33 á móti 7/34 hjá Snæfell.  

 ÍA: 20 sóknarfráköst og 40 varnarfráköst – samtals 60 fráköst.  

 Snæfell: 11 sóknarfráköst og 30 varnarfráköst – samtals 41 fráköst.  

 Snæfell var með einungis 9 leikmenn á leikskýrslu.  

 ÍA fékk 46 stig af varamannabekknum á móti 12 hjá Snæfell.  

 Ungir stuðningsmenn ÍA fögnuðu vel Srdan Stojanovic fyrrum leikmanni ÍA.  

Næsti leikur Skagamanna er bikarleikur heima gegn stórliði Álftaness, svo er topp slagur gegn Þór Þorlákshöfn sem einnig er með fullt hús stiga í 1.deildinni. Snæfell fær hins vegar Selfoss í heimsókn og eygja þar að ná í sinn fyrsta sigur.

Tölfræði leiksins: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Leikur?league_id=191&season_id=132571&game_id=6153942#mbt:6-400$t&0=1

(Jón Þór, grein tekin af karfan.is).

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!