Naumt tap gegn Þór frá Þorlákshöfn
Snæfell þurfti að sætta sig við tap gegn Þór Þ. þegar liðin mættust í Stykkishólmi föstudaginn 13. nóvember. Lokatölur urðu…

Í maí kom hlaupaþjálfarinn Gunnar Páll Jóakimsson í heimsókn og var með hlaupaæfingu fyrir elsta hópinn. Gunnar Páll er einn fremsti hlaupaþjálfari landsins og hefur hann m.a þjálfað þrjá Ólympíufara.
16 sprækir krakkar tóku þátt í æfingunni. Æfingarnar voru fjölbreyttar og reyndu á ólíka þætti. Æfingin gekk glimrandi vel og áhuginn leyndi sér ekki.
Gunnar Páll stefnir á að hafa aðra æfingu í sumar fyrir hópinn.

