
Íslandsmeistarar í 2. deild
Strákarnir okkar í 11.flokki gerðu sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar í 2.deild í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfell spilaði gegn…
Að vel ígrunduðu máli hafa stjórn kkd. Snæfells, Aðalstjórn félagsins og aðstandendur leikmanna ákveðið að draga liðið úr keppni í 1. deild kvenna frá og með deginum í dag, 11. desember. Stelpurnar munu því ekki leika síðasta leik sinn fyrir jólafrí sem átti að fara fram á laugardag.
Nú hefst tími skipulags og uppbyggingar innan yngri flokka félagsins svo kvennalið Snæfells geti mætt af fullum krafti til leiks í framtíðinni. Snæfell þakkar stelpunum fyrir sitt framlag á leiktíðinni.
Áfram Snæfell