
Kæru vinir nær og fjær… nú er komið að styrktarávízun númer twö til Snæfells! ![]()
![]()
Af því tilefni er ekki úr vegi að rifja aðeins upp hugmyndina á bak við þetta geggjaða samstarf Bjössa á Benzó við Körfuknattleiksdeild Snæfells
Mér hefur alltaf þótt mikilvægt að gefa af sér og styðja við samfélagið. Mitt „heima“ er Stykkiz… þó ég sé enn „tímabundið“ búsettur annars staðar.
Konseptið var svona… að gefa fólki kost á að styrkja Snæfell um leið og það selur fasteignina sína. Þegar þú felur stráknum söluna og velur að styrkja félagið renna 10% af umsaminni söluþóknun til Snæfells. Þannig verður salan líka að stuðningur við það góða starf sem unnið er í okkar ástkæra félagi.
Og nú er þessi hugmynd er aftur að gefa… 502.340kr. til Snæfells!
Innilegar þakkir til allra ykkar sem hafið treyst mér fyrir sölu á eigninni ykkar og lagt félaginu lið í leiðinni. Án ykkar væri engin nostalgíugræn Búnaðarbankaávísun. Traustið og stuðningurinn eru mér mikils virði.
Ég hvet því Hólmara og alla velunnara Snæfells, hvar sem þið eruð á landinu, til að hafa þetta á bak við eyrað þegar kemur að fasteignasölu. Eignin þarf ekkert að vera í Stykkiz… það má alveg styrkja Snæfell úr Grafarvoginum, Grundarfirði .sem og Grindavík og Seltjarnarnesi!
Ertu í sölupælingum? Heyrðu í mér og við förum yfir málin. Bjössi er alltaf klár… og nú er stefnan tekin á ávízun númer þrjú, miklu fyrr heldur en seinna.
Takk fyrir traustið.. og eins og okkar besti Gunnar Svanlaugsson segir….Áfram Snæfell út um allan heim…já og út fyrir endimörk alheimsins ef því er að skipta