Svekkjandi tap gegn KV!

október 12, 2026

Snæfell þurfti að sætta sig við svekkjandi 98–102 tap gegn KV í Stykkishólmi laugardaginn 10. október, eftir spennandi leik þar sem liðin skiptust hvað eftir annað á forystu. Snæfell byrjaði af krafti og komst mest yfir 13 stigum eða 28 – 15 í 1. Leikhluta en slakaði vel á eftir það og var staðan 32 – 25 í lok hlutans. Munurinn var svo 3 stig í hálfleik 52 – 49.

Í þriðja leikhluta tók KV frumkvæðið og vann leikhlutann 27–21. Snæfell var því sex stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 73–76. Þar hélt spennan áfram en þrátt fyrir 25 stig í fjórða leikhluta tókst Snæfelli ekki að snúa leiknum sér í hag. Lokatölur urðu 98–102.

Jackson fór fyrir Snæfelli

Cooper Jackson átti öflugan leik fyrir Snæfell og var stigahæstur liðsins með 27 stig. Hann hitti úr 11 af 19 skotum sínum, þar af fjórum þriggja stiga skotum, og bætti við níu stoðsendingum,  þremur fráköstum og heilum 8 stolnum boltum.

Srdan Stojanovic skoraði 19 stig og tók sjö fráköst, Keylane Lasisi var með 20 stig, 12 fráköst og 2 stolna bolta. Erik Nói skoraði níu stig og tók fimm fráköst. Símon Tómasson kom sterkur inn af bekknum og skilaði 10 stigum. Hjörtur Jóhann Sigurðsson 8 stig.

Snæfell fékk 15 stig frá varamönnum sínum sem er flott framför frá síðasta leik.

KV nýtti skotin betur

Þótt Snæfell hafi hitt vel úr tveggja stiga skotum, eða 57%, og skorað 13 þriggja stiga körfur, var skotnýting KV betri þegar á heildina var litið. Gestirnir hittu úr 62% tveggja stiga skota og 44% þriggja stiga skota, samanborið við 57% og 36% hjá Snæfelli.

KV hafði yfirburði í fráköstum og tók 10 fleiri fráköst en okkar menn sem reyndist okkur erfitt. Sturla Böðvarsson og Finnur Tómasson áttu flottan leik fyrir KV. Sturla skoraði 20 stig, tók 13 fráköst og var með 29 í framlag. Finnur skoraði 27 stig og 4 fráköst.

Þrátt fyrir góða spretti náði Snæfell ekki að landa sigrinum. Liðið getur þó tekið jákvæða punkta úr sóknarleiknum en helst til mikið vantar í baráttunni varnarlega og í fráköstum. 

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!