Tæpt var það en 2 stig í hús

Tæpt var það en 2 stig í hús

Snæfell og KR mættust í Hólminum í kvöld og hafa mæst tvívegis í vetur og hafa bæði lið haft sigur á útivelli. Fyrri leikurinn í DHL fór 57-80 fyrir Snæfelli og í Hólminum sigruðu KR stúlkur 60-64. Í upphafi leiks lék Snæfell sterka vörn en skiluðu sóknum sínum illa og hittni slök. Fyrstu þrjár mínútur leiksins var staðan 3-0 fyrir Snæfell. KR lét buga sig í sóknum sínum og töpuðu boltum. Snæfell fór undir miðjan fyrsta fjórðung að láta meira til sín taka í nýtingu. Björg Guðrún skellti niður þrist á kunnuglegum slóðum fyrir KR og þær héldu í við Snæfell 10-7. Snæfell leiddi eftir 16-11 eftir fyrsta hluta.

KR var að tapa boltanum illa, komnar með 10 slíka í upphafi annars hluta, og Snæfell gekk hratt á lagið 9-0, komust strax í 22-11 og svo 25-11. Heimastúlkur voru einnig að taka meirihluta frákasta sem í boði voru og KR náði varla að setja upp sóknir sínar almennilega og voru einungis með um 16% nýtingu 3 af 19 í tvistum. Snæfellingar keyrðu á KR og náðu 14 stig forskoti 34-20 þegar leið á fyrri hálfleikinn og Eva Margrét hafði smellt niður tveimur þristum sjóðheit og kom með kraft í leik Snæfells þó lítinn kraft þyrfti í gríðarsterka vörnina með Guðrúnu Gróu í frákastaham. Staðan í hálfleik 37-25.

Hjá Snæfelli var Chynna Brown komin með 14 stig og 5 fráköst og Hildur Björg þar næst með 8 stig. Hjá KR voru Ebone Henry og Sigrún Sjöfn með 7 stig hvor og Björg Guðrún næst með 6 stig.

Björg Guðrún skellti sínum þriðja þrist og reyndi að halda sínum stúlkum við efnið 43-32 og batamerki virtust á leik KR. Þær fóru að berjast betur í fráköstum og róa sig í sóknum á meðan Snæfell slakaði á taumnum verulega miðað við fyrri hálfleik. KR stúlkur höfðu saxað á 45-38 og Snæfellsstúlkur farnar að tapa boltum klaufalega. Snæfell réttu eilítið úr kútnum og leiddu eftir þriðja hluta 49-40.

Snæfell byrjaði 53-40 í fjórða hluta en KR héldu sig ekki fjarri 56-46 með góðu framlagi frá Sigrúnu Sjöfn t.a.m. og fljótt var munurinn ekki nema 4 stig 58-54 og svo 62-60 þegar tvær mínútur voru eftir. Spennan var allveruleg síðustu mínútuna þegar Helga Einars náði skoti niður og brotið var á henni og KR komst yfir í fyrsta skipti í leiknum 64-65 og voru það þegar 26 sekúndur voru eftir. Hildur Sigurðardóttir jafnaði á línunni 65-65 með 18 sek á klukkunni. Snæfell fékk vítaskot þegar 0.7 sek voru eftir með broti Sigrúnar Sjafnar og Hildur Sigurðardóttir setti bæði niður 67-65 og KR náðu ekki að gera sér mat úr þeim litla tíma sem var eftir og Snæfell styrkir stöðu sína á toppnum með naumasta sigri sem maður hefur séð lengi.

Mikil reikistefna var við ritaraborðið þar sem þeir Yngvi og Gunnar þjálfarar KR voru ósáttir en innkast KR var endurtekið með 0.7 sek á klukkunni en boltinn fór í hendur Snæfells. KR menn fóru þá í heilmiklar rökræður við dómara leiksins þá Halldór Geir og Rögnvald sem voru heilt yfir fínir.

Enginn sveifluolnbogi var þó hjá leikmönnum í leiknum þrátt fyrir að grænt ljós hafi nú verið gefið á slíkar sveiflur.

Snæfell: Chynna Brown 24/9 frák/4 stolnir. Hildur Björg 12/12 frák. Hildur Sigurðardóttir 9/4 frák/7 Stoðs. Guðrún Gróa 9/12 frák/5 stoðs. Eva Margrét 8/4 frák. Helga Hjördís 3/7 frák. Hugrún Eva 2. Edda Bára 0. Rebekka Rán 0. Silja Katrín 0. Aníta Rún 0.

KR: Sigrún Sjöfn 19/11 frák/4 stoðs/7 stolnir. Ebone Henry 17/13 frák/6 stoðs/ 5 stolnir. Björg Guðrún 11. Bergþóra Holton 11/4 frák. Helga Einarsdóttir 5. Sara Mjöll 2. Kristbjörg Pálsdóttir 0. Anna María 0. Ragnhildur Arna 0. Rannveig Ólafsdóttir 0. Sólrún Sæmundsdóttir 0.

Ingi Þór, þjálfari Snæfells, hafði þetta að segja eftir leik:

”Mér finnst vinnusemin í liðinu þokkaleg, við tókum 51 frákast í leiknum en vorum í jafnri frákastabaráttu við þær [KR] en þær fá alltof mörg sóknarfráköst í seinni hálfleik og of mörg stig upp úr því. Við eigum svo afburðalélegann fjórða hluta þar sem við töpum 11 boltum gegn þeirra pressu og við krefjumst þess að við gerum betur þar. Við sýndum þó þrautseigju og vorum smart í lokin þegar þær áttu von á að við settum annað upp og sá ekki nákvæmlega hvað gerðist. Hildur [Sigurðardóttir] var í baráttunni og þær hljóta að hafa slegið fyrst það var dæmt en heilt yfir fannst mér þetta sanngjarn sigur. Það er auðvitað svekkjandi fyrir KR að komast yfir í blálokin og tapa síðan en heilt yfir leikinn tel ég við hafa verið betra liðið.”

Yngvi Páll þjálfari KR var að vonum svekktur og hafði þetta að segja við Karfan.is:

”Mér finnst við ekkert vera að passa svo illa á móti Snæfelli en þær hafa verið að spila besta boltann ásamt Haukum í vetur. Það er gott að geta komið hingað með sjálfstraust og gefið þeim leik eins og síðast. Við komum með ákveðið plan en það gekk ekki eftir og vorum að hitta illa í fyrri hálfleik og sónknarframkvæmdin ekki næg. Við litum á björtu hliðarnar með 12stig undir í hálfleik og það kom meiri ró í leikinn. Við hleyptum þessu uppí aðeins meiri hraða þrátt fyrir að stigsskorið væri ekki hátt. Þetta hentaði okkur, við pressuðum þær í að tapa boltum, refsuðum á móti og þetta hefði getað lent hvorumegin sem var í lokin.”

Yngi Páll var svo inntur eftir viðbrögðum hans og Gunnars eftir leik:

”Okkur var auðvitað heitt í hamsi í lokin, við erum keppnismenn hvort sem er inni á vellinum eða á hliðarlínunni við þjálfararnir og þess vegna erum við í þessu. Ég er búinn að ræða við dómararna eftir leikinn og þeir eru mannlegir. Ég segi ekki að þeir hafi gert mistök en fannst villan í lokin með 0.7 sekúndur eftir, tveir leikmenn sitjandi á vellinum og staðan jöfn mjög afdrifarík. Ég held að engin hefði kvartað, hvorki ég né Ingi Þór ef leikurinn hefði farið í framlengingu og fólkið fengið þá aðeins meira fyrir peninginn.”

Tölfræði leiksins
Myndasafn – Eyþór Benediktsson