Skráning fyrir UNGLINGALANDSMÓT

Skráning fyrir UNGLINGALANDSMÓT

Nú styttist í Unglingalandsmótið.

Unglingalandsmót UMFÍ eru vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er árlega og ætíð um verslunarmannahelgina. Mótin eru haldin á mismunandi stöðum en í ár verður mótið haldið í Borgarnesi.

Unglingalandsmótið er öllum opið á aldrinum 11 – 18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé í einhverju íþróttafélagi eða ekki.Skráning á mótið hefst 1. júlí 2016 og lýkur um miðnætti laugardaginn 23. júlí.

Mótsgjald er kr. 7.000.- á hvern einstakling 11 – 18 ára sem skráir sig til keppni. Greiða þarf gjaldið til að geta klárað skráningu. Aðrir mótsgestir greiða ekkert gjald en þó geta þeir tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og verkefnum sem boðið er upp á.

Hvetjum sem flesta til þess að taka þátt í hinum ýmsu greinum sem eru í boði. Ekki er nauðsynlegt að vera með fullmannað lið því hægt er að skrá einstakling og verður þá viðkomandi fundið lið til að keppa með. Skemmtilegt fyrirkomulag sem gefur krökkum kost á að prófa hina ýmsu greinar og kynnast krökkum á sama aldri.

Hvað körfuna varðar þá ætlum við að stofna lið undir merkjum Snæfells og biðjum við ykkur að láta Magnús Inga vita hverjir ætla að vera með (mib@simnet.is / 8648862). Ef einhverjar spurningar eru varðandi skráningu í öðrum greinum má hafa samband við Gísla Páls varðandi frjálsar (gislipalsson82@gmail.com sími 8618389). Kári P. Ólafs hefur verið með knattspyrnuna í sumar og eflaust hægt að leyta til hans hvort það er stemming fyrir skráningu á liðum í þeirri grein.
Hvað aðrar greinar varðar er hægt að hafa samband við Ingólf hjá UMFI á netfangið ingolfur@umfi.is eða í síma 847 6287 milli kl. 16.00 og 18.00.