Fréttir af unglingaflokk kvenna

Fréttir af unglingaflokk kvenna

Stelpurnar sem leika í sameiginlega liði með Breiðablik sigruðu Hauka eftir framlengdan leik sunnudaginn 23. október 66-64. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 58-58. Staðan í hálfleik var 37-22 okkar dömum í vil.

Þegar að skammt var til leiksloka var staðan 56-49 en með frábærum lokakafla náðu Haukar að jafna en í framlengingunni sem var æsispennandi náðu okkar dömur að sigra og því eru komnir tveir sigrar í hús þar sem liðið sigruðu Fjölni 63-58 8. október.

Anna Soffía Lárusdóttir var með 8 stig – þar af 3 stig í framlengingunni.

Næsti leikur Breiðablik/Snæfell er á heimavelli hérna í Stykkishólmi laugardaginn 29. október klukkan 14:00.