http://snaefell.is/wp-content/uploads/2015/12/12185461_10154382070157907_5372084693226004126_o.jpgTaylor Brown hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Snæfell

Taylor Brown hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Snæfell

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur sagt samningi við Taylor Brown upp og er leikmaðurinn nú þegar farinn heim vegna persónulegra ástæðna. Síðasti leikur Taylor var gegn Stjörnunni þar sem sannfærandi sigur vannst 70-50.

Körfuknattleiksdeild Snæfells vill þakka Taylor fyrir afar góð kynni og óskar henni alls hins besta í framtíðinni.

Taylor Brown skoraði 21.4 stig, tók 4.8 fráköst og gaf 2.6 stoðsendingar í leik fyrir Snæfell.

Leit að nýjum leikmanni stendur yfir og er vonast til að þau mál klárist á næstu dögum.