Andrea Björt framlengir við Snæfell
Framherjinn Andrea Björt Ólafsdóttir framlengdi í gær til eins árs samning sinn við Snæfell.
Andrea Björt hefur leikið vel með Snæfell á tímabilinu og er það mjög jákvætt fyrir liðið að hún hefur ákveðið að halda áfram með liðinu.