Úrslit hjá 4. fl kv

Síðasti leikur sumarsins var í gær í Ólafsvík þegar HK kom í heimsókn. Þessum leik var frestað einhvern tímann í sumar og voru allir orðnir úrkula vonar um að HK kæmi í leikinn. En þá hótaði KSI þeim 70 þús kr sekt ef þeir spiluðu ekki leikinn svo þeir stukku auðvitað upp í loftið og leiknum var komið á í gær, sem var reyndar mjög óheppilegt fyrir okkur þar sem helmingurinn af flokknum var í Vatnaskógi og þjálfarinn austur á landi að spila sjálfur. Til að ná í lið voru margar 5. fl stelpur kallaðar til leiks.

Leikurinn fór 11 – 0 fyrir HK.