Snæfell mætir Njarðvík í 4. liða úrslitum Powerade-bikarsins

Á laugardaginn tryggði Snæfell sér sæti í 4. liða úrslitum Powerade-bikarsins með því að leggja lið Þórs að velli 99-84. Okkar menn höfðu yfirhöndina allan tíman og voru að spila mjög vel. Nánari umfjöllun um leikinn er á vef Stykkishólmspóstsins.

Nú er orðið ljóst að við munum mæta Njarvík í 4. liðaúrslitum keppninar og fer leikurinn fram í Laugardalshöllinni nk. fimmtudag kl. 21:00. Leikurinn verður auglýstur nánar á morgun.