Snæfell sækir Njarðvík heim í kvöld

Fyrsta umferð Icelandexpress-deildarinnar fer fram í kvöld. Okkar menn í Snæfelli sækja deildarmeistara Njarðvíkur heim og má bóka hörku slag. Liðin mættust einmitt í undanúrslitum Powerade-bikarsins fyrir skömmu og höfðu Snæfellingar þar 6 stiga sigur, 79-85 eftir jafnan leik. Strákarnir ætla sér að vera í toppbaráttunni í vetur og skiptir miklu máli að byrja vel. Það væri því drauma byrjun að sækja sigur í kvöld á þennan sterka heimavöll. Leikurinn hefst kl.19:15 og vonumst við til að sjá sem flesta rauðklædda stuðningsmenn á pöllum Ljónagrifjunnar.

Áfram Snæfell