Snæfell – Keflavík í kvöld kl.19:15

Spennan er orðin óbærileg fyrir fyrsta heimaleik vetrarins í Iceland Express-deildarkeppninni. Í kvöld munu Snæfell og Keflavík mætast og er ljóst að okkar menn munu selja sig dýrt. Keflvíkingar byrjuðu deildina af krafti með því að leggja Grindvíkinga að velli á sama tíma og Snæfell tapaði gegn Njarðvík. Leikurinn í kvöld hefst kl.19:15 og hvetjum við alla Hólmara og nærsveitunga til að mæta og styðja Snæfell til sigurs.

Áfram Snæfell!