Stórleikur í DHL-Höllinni í kvöld

Það verður engin smá orusta sem boðið verður upp á í DHL-höllinni í kvöld þegar okkar menn í Snæfelli sækja Íslandsmeistara KR heim. Þessi sömu lið áttust við fyrir stuttu í úrslitum Powerade-bikarkeppninnar og höfðu Snæfellingar þá sigur eftir hörkuleik. Leikir þessara liða hafa verið ótrúlega spennandi í gegnum tíðina og verður engin undantekning í kvöld. Við Hólmarar munum að venju fjölmenna í Vesturbæinn og fylla DHL-höllina kl.19:15.

Áfram Snæfell!