Hamar – Snæfell í kvöld

Í kvöld sækja strákarnir okkar í Snæfelli lið Hamars frá Hveragerði heim. Leikurinn hefst kl.19.15 og verða okkar menn að eiga toppleik ef þeir ætla að sækja stig á þennan erfiða heimavöll Hvergerðinga. Snæfell og Hamar eru á sama stað í deildinni með 3 töp og 1 sigur eftir 4 umferðir. Við hvetjum alla Snæfellinga til að gera sér ferð í garðyrkjubæinn og styðja sína menn til sigurs.

ÁFRAM SNÆFELL