Kaupþing styrkir Snæfell

Í dag kl.16 munu Kaupþing og körfuknattleiksdeild Snæfells skrifa undir styrktarsamning. Að því tilefni er bæjarbúum boðið til móttöku í útibúi bankans í Stykkishólmi. Hlynur og Justin munu vera á staðnum og árita plaköt fyrir börnin.