Slæmt tap gegn ÍR

Snæfell tapaði illa í kvöld gegn ÍR þegar liðin mættust í 10 umferð Iceland Expressdeildarinnar. Lokatölur urðu 102-77. Leikurinn var jafn i fyrri hálfleik, en í þeim seinni sáu okkar menn aldrei til sólar. Eftir leikinn er Snæfell í 6-8 sæti deildarinnar með 8 stig ásamt ÍR og Þór. Það er alveg ljóst að okkar menn verða að nota jólafríið vel til að safna kröftum, því sjúkralistinn er í sögulegu hámarki. Næsti leikur er þann 30. des nk. gegn Þór í Fjárhúsinu.