Gunnhildur og María æfa með U-18

Gunnhildur Gunnarsdóttir og María Björnsdóttir eru búnar að spila feikna vel með meistarflokki Snæfells í 1.deildinni í vetur.  Það kemur því ekki á óvart að þær voru valdar í æfingahóp U-18 landsliðsins sem mun æfa í fjóra daga á milli jóla og nýárs.