Snæfell sækir Tindastól heim í kvöld

Upp úr hádegi leggja strákarnir okkar í hann og förinni er heitið í Skagafjörðinn, nánar tiltekið á Sauðárkrók. Verkefni kvöldsins er leikur gegn Tindastól í 17. umferð Iceland Express-deildarinnar. Fyrri leik leiðanna í deildinni lauk með sigri Snæfells 101-73, en sá leikur gefur enga mynd af þessum liðum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar bæði í Skaga- og Breiðafjörðinn og má búast við hörkubaráttu þar nyrðra. Eins og stuðningsmenn Snæfells vita, þá þurfum við að vinna alla deildarleikina sem eftir eru, ef við ætlum að krækja í 4. sæti deildarinnar.