Orustan um Vesturland í kvöld kl.19:15

Stærsti leikur vetrarins til þessa er í kvöld, þegar Snæfell tekur á móti grönnum sínum í Skallagrími. Þetta verður sannkölluð orusta um Vesturland því liðin eru að berjast um 4. sætið í Iceland Express-deildinni sem tryggir heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Sem stendur er Skallagrímur í 4. sætinu með 20 stig, en Snæfell í því 6. með 18 stig jafn mörg og Njarðvík sem er í 5. sæti vegna betri innbirðisstöðu gagnvart okkar mönnum.