Snæfell – ÍR í kvöld kl.19:15

Í kvöld taka strákarnir okkar í Snæfelli á móti ÍR-ingum í næst síðustu umferð Iceland Express-deildarkeppninnar í körfuknattleik karla. Bæði lið þurfa að styrkja stöðu sína í deildinni, en á mismunandi stöðum. Við Snæfellingar erum í harðri baráttu við Njaðrvík um 4. sætið, en ÍR-ingar freista þess að hrifsa 6. sætið af Skallagrímsmönnum. Sem stendur er Snæfell í 5. sæti deildarinnar með 24 stig, jafn mörg og Njarðvík sem er í því 4. á betri innbirgðis stöðu. Staðan í deildinni er hér.

Við hvetjum alla stuðningsmenn um að fjölmenna á leikinn og styðja Snæfell til sigurs.

Áfram Snæfell!