Íslandsmótið að byrja!

Nú er íslandsmótið að byrja og er fyrsti leikur okkar um helgina. Snæfellsnes sendir lið til keppni í 6.fl ka, 6.fl kv, 5.fl ka A og B lið, 5.fl kv A, B og C lið, 4.fl ka, 3.fl ka, 3.fl kv og U 23. Það verður því nóg að gera hjá okkar krökkum í sumar. Auk Íslandsmótsins verður farið á pæjumótið í Eyjum, Smábæjarleikana á Blönduósi, 4.fl ka fer til Svíþjóðar við förum á unglingalandsmótið, pæjumótið á Siglufirði og Króksmótið á Sauðárkrók.