Minniboltastelpur unnu sinn riðil

Það voru ekki bara strákarnir í 9.flokki sem unnu glæsta sigra síðustu helgi, það gerðu einnig stelpurnar í Minniboltanum.  Þær kepptu hér heima þar sem leiknar voru tvær umferðir í B-riðli.  Stelpurnar stóðu uppi sem sigurvegarar eftir þær umferðir og fara því upp í A-riðil.

Stelpurnar hófu þó leik á laugardeginum með tveggja stiga tapi gegn Haukum en litu ekki til baka eftir það og unnu þá leiki sem eftir voru þ.á.m. Haukana í seinni leiknum með 1 stigi.