Snæfell vann Þór 88-71

Snæfellsstrákar höfðu sigur á Þórsurum eftir nokkuð jafnann leik 88-71 en Snæfellingar nýttu sér lánleysi Þórsara í lokin og kláruðu sinn leik með stæl. Strákarnir eru að finna taktinn og gaman að sjá að 70 ára afmælisgjöfin eru tveir sigrar í deildinni í þessari afmælisviku.