Minniboltastrákar með góða sigra

Strákarnir í Minniboltanum fóru til Þorlákshafnar í gær og léku þar í C- riðli í Íslandsmótinu. Það stóð til upphaflega að leika laugardag og sunnudag en svo dró Tindastól sig úr keppni og þá var ákveðið að klára mótið á laugardeginum. Strákarnir léku því þrjá leiki á laugardag, byrjuðu á því að mæta heimamönnum í Þór sem reyndust of stór biti en unnu svo seinni leikina örugglega. Úrslitin urðu:
Snæfell – Þór Þorláksh. 22-63
Snæfell – Fjölnir B       54-38
Snæfell – Fsu             61-22