Snæfell-Stjarnan 87-83

Hann var naumur sigurinn þó Snæfell hafi leitt leikinn með 12-17 stigum frá miðjum öðrum hluta framm yfir miðjann fjórða. Þá gerðist það að Stjarnan stal boltanum hvað eftir annað við innkast Snæfellinga eftir skoraða körfu og settu þeir 17 stiga forystu Snæfells niður í 5 stig á stuttum tíma undir lokin. Snæfellingar stóðust þó pressuna eftir leikhlé og héldu sínu striki eftir að Stjörnumenn féllu í að safna villum sem okkar menn settu vel niður á vítalínunni sen bjargaði sigrinum en Justin var erfiður í leiknum og sprækur undir lokin en sótti ekki gullí greipar Snæfellinga í kvöld og sigur í síðasta heimaleik Snæfells á árinu staðreynd. 87-83