Snæfell fær Keflavík í heimsókn í Subway-bikarnum

Miðvikudaginn 10. desember leika Snæfellsstúlkur fjórða leikinn gegn Keflavík í ár og í þetta sinn í Subway-bikarkeppninni. Snæfell lék sinn fyrsta leik í vetur á útivelli gegn Keflavík í Powerade-bikarnum og svo í deildinni bæði heima og heiman. Snæfell hefur tapað þeim þremur leikjum sem búnir eru og eiga því harma að hefna og víst að þær munu leggja sig allar fram í bikarleiknum á miðvikudag. Leikurinn hefst kl. 19.15 og verður boðið upp á Bónusskot í hálfleik og jafnvel fleiri uppákomur og eru stuðningsmenn hvattir til að fjölmenna á þennan næstsíðasta heimaleik liðsins fyrir jólafrí.