Snæfell með 5. sigurinn í röð

Snæfell gerði góða ferð norður í land og tóku tvö stig í sínum fimmta sigurleik í röð 56-74. Snæfell hafði yfir allann tímann eftir að þeir komust yfir 16-19 í fyrsta fjórðung eftir þrist frá Agli. Þeir leiddu í hálfleik 26-39. Snæfell hafði nokkra yfirburði á ýmsum sviðum eins og t.d. fráköstum sem þeir unnu 51/28 og betri skotnýtingu þó boltinn hafi ekki alltaf verið að detta niður á köflum í leiknum, en sigur var það og mjög góður stígandi í liðinu.