3.flokkur karla

Snæfellsnes og Skallagrímur hafa gert með sér samkomulag og munu senda sameiginlegt lið í 3.fl ka á íslandsmótið í sumar. Þetta er gert til þess að skapa strákunum verkefni því hvorugt félagið hefði annars náð að manna 11 manna lið.

Fyrsta æfing verður á laugardaginn 16.maí og er mæting kl 10 í Akraneshöllina. Spilaður verður æfingaleikur við ÍA.

Tegniliðir í 3.fl ka eru Páll í Stykkishólmi og Gunnar Óli í Snæfellsbæ.

Leikina í sumar má sjá hér en ath að eftir er að skipta þeim niður á vellina.