Sigur í fyrsta leik hjá Inga Þór

Snæfell sigraði sinn fyrsta leik undir stjórn Inga Þórs á Reycup mótinu. Mótherjarnir voru alls ekki af slakari gerðinni en það voru Grindvíkingar og sigraði Snæfell þá 86-79 þar sem stigahæstur var Nonni Mæju með 28 stig og 4 frák. Siggi Þorvalds með 14 stig og 10 frák. Hlynur 12st og 7 frák og Pálmi 12 st. Næsti leikur Snæfells á mótinu er á fimmtudaginn 3. sept kl 19:00 á móti Breiðablik en samkvæmt heimildum komu þeir inn fyrir KR sem drógu þátttöku sína til baka.