Tilkynning fyrir 11. flokk

Á mótið á Akranesi 10. – 11. okt munu foreldrar eftirtalinna liðsmanna keyra, Þorbergur, Magnús, Skúli og Símon. Ekið verður fram og til baka báða dagana en ekki verður gist á Skaganum.

Brottför á laugardag 10.okt kl 8.30 frá íþróttahúsi. Fyrsti leikur kl 11.00.

Brottför á sunnudag 11.okt kl 6.30 frá íþróttahúsi. Fyrsti leikur kl  9.00.

Kostnaður er 2000 kr á mann.

  • Að gefnu tilefni skal það tekið fram að á meðan ekið er á mót Snæfells í þessum aldursflokki þá er æfingarakstur hjá liðsmönnum alls ekki leyfður í þessum ferðum á vegum félagsins. Stjórnir Snæfells ítreka að þetta er hvorki staður né stund til slíkra verka og vilja því koma þessu á framfæri.