Snæfell tók Blika með 19 stigum

Snæfell mætti í Smárann Kópavogi í sínum búningum í þetta sinn og tóku sinn annan sigur í deildinni á Breiðablik 62-81 Tölfræði leiksins. Glæsilegur sigur og skutust Snæfellingar í fyrsta sætið með þessum sigri með hagstæðasta skormismun.

Blikar voru hressari á sínum heimavelli fyrsta hlutann og var eins og Snæfell væru ennþá í göngunum. Blikar tóku fyrsta hlutann samt naumt 18-14 og var vesturlandsrisinn að vakna undir lokin.