Subwaybikardráttur 16-liða úrslit

Dregið var í 16-liða úrslitum Subwaybikar karla og kvenna í dag. Bæði karla og kvennalið Snæfells voru í pottinum og fer svo hjá mfl kvenna að þær sitja hjá fyrstu umferð. Mfl karla sem flaug í gegnum fyrstu umferð með sigur á Álftanesi 122-49, fékk heimaleik og í Fjárhúsið mæta Hamarsmenn sem sigruðu Mostra í fyrstu umferð.